

Sérfræðingur á gæðasviði
Coripharma óskar eftir að ráða fjölhæfan sérfræðing í ýmis verkefni á gæðasviði, nánar tiltekið á Gæðatrygginga-og Eftirlitsdeild. Verkefni deildarinnar eru mjög fjölbreytt og tengjast uppbyggingu, viðhaldi og eftirliti á gæðakerfum sem og eftirliti með ýmsum stigum framleiðslu- og pökkunar.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem unnið er í nánu samstarfi við annað starfsfólk deildarinnar sem og starfsfólk og einingar innan annarra deilda fyrirtækisins. Verkefni og ábyrgðasvið verða útfærð í samræmi við reynslu og hæfni þess sem ráðinn verður, auk þess sem þau geta tekið breytingum eftir þörfum og þróun verkefna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áhættugreiningar
- Gerð og viðhald skriflegra leiðbeininga
- Árlegt yfirlit yfir gæði vöru (e. Annual Product Quality Review)
- Samþykkt framleiðslumastera og rannsóknarmastera
- Verkefni tengd umhverfiseftirliti
- Verkefni tengd frávikavinnslu
- Eftirlit með uppfærslum á reglugerðum (Regulatory Surveillance)
- Meðhöndlun kvartana
- Stjórn breytinga
- Þátttaka í innri úttektum
- Ýmis greiningarvinna og úrvinnsla úr gögnum
- Betrumbætur á ferlum og yfirferð á skýrslum sem tengjast gæðamálum t.d. úttektarskýrslur frá birgjum, gildingaskýrslur fyrir vörur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í raungreinum sem nýtist í starfi
- Reynsla af gæðakerfum er kostur (GMP)
- Nákvæmni og skipulagsfærni
- Góð samstarfshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku – og enskukunnátta
Fríðindi
- Mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 230 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki. Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 22 lyfjum og er með 21 nýtt lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst.













