Sérfræðingur í fjarskiptum – Þjónusta og tæknileg þróun
Hæ!
Við leitum að drífandi sérfræðingi í fjarskiptum til að slást í hópinn á fyrirtækjasviði Hringdu. Í starfinu felst að aðstoða viðskiptavini með ýmis tæknileg mál en einnig að taka virkan þátt í að móta tæknilega framtíð fyrirtækjasviðs Hringdu. Þú ert með jákvætt viðmót, hugsar í lausnum og vilt umfram allt veita frábæra þjónustu.
Hvað ertu að fara gera?
- Aðstoða fyrirtæki yfir síma & tölvupóst með tæknileg mál
- Setja upp og viðhalda símkerfum
- Setja upp og viðhalda netbúnaði og þráðlausum kerfum
- Veita tæknilega ráðgjöf til viðskiptavina og starfsmanna
- Eiga samskipti við okkar helstu birgja
- Tækla ýmis önnur verkefni sem koma upp á
Hæfniskröfur
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla af Ubiquiti & Cisco er æskileg
- Reynsla af uppsetningu símkerfa er kostur
Annað
- Um er að ræða 100% starf
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Sjö tíma vinnudagur
Ef þér líst vel á okkur og starfið hvetjum við þig til að sækja um!
Um Hringdu
Hringdu er lítið en ört vaxandi fjarskiptafyrirtæki þar sem hæfileikaríkir einstaklingar geta unnið sig upp í starfi. Hér vinna fáar hendur mörg og mismunandi verk og er því starfið fjölbreytt, reynslumikið og ríkt af ábyrgð. Við fáum sendan mat í vinnuna fimm daga vikunnar og skálum alla föstudaga. Starfsmannafélagið Svaraðu sér fyrir góðu skemmtanalífi og hér elska allir kaffi, ketti & hunda.
Hringdu var valið Fyrirmyndafyrirtæki hjá VR árið 2017, 2018, 2019 og Fyrirtæki ársins 2020, 2021, 2022 og 2024. Fjölskylduvænn vinnustaður árið 2024.
Hringdu var með ánægðustu viðskiptavini í net- og símaþjónustu skv. Meðmælingu Maskínu 2019, 2020, 2021, 2022, 2023 og 2024.