

Rannsókna- og þróunarsérfræðingur
Komdu og vertu með okkur hjá BIOEFFECT.
Við hjá BIOEFFECT leggjum áherslu á vísindi, gæði og virkni. Öll þróun og framleiðsla fer fram í höfuðstöðvum okkar á Íslandi, en vörur félagsins eru seldar um allan heim. Húðvörur BIOEFFECT hafa hlotið fjölda verðlauna hjá sérfræðingum og fagfólki um allan heim. Við leggjum metnað í öfluga nýsköpun til að tryggja samkeppnishæfni vörulínunnar okkar í hörðu, alþjóðlegu samkeppnisumhverfi.
Um starfið
Starfsheiti: Rannsókna- og þróunarsérfræðingur – Research and Development Specialist.
BIOEFFECT leitar að öflugum rannsókna- og þróunarsérfræðingi til starfa í R&D deild fyrirtækisins. Starfið felur í sér þátttöku í þróun og prófun húðvara, forystu í rannsóknarverkefnum og tryggja að öll vinna sé í samræmi við gæðakröfur og öryggisstaðla.
- Taka þátt í rannsóknar- og þróunarverkefnum (R&D), með því að blanda saman þekkingu og áhuga á húðvörum, innsýn í neytenda- og markaðsþarfir og verkefnastjórnun.
- Hanna og framkvæma áætlun fyrir prófanir á virkni vara í samræmi við gæðakröfur og öryggisstaðla.
- Stuðla að góðum samskiptum við innri teymi (t.d. framleiðslu-, sölu- og markaðsteymi) sem og ytri samstarfsaðila (t.d. rannsóknarstofur, birgja o.fl.).
- Hanna, skipuleggja og framkvæma virkni- og húðrannsóknir á vörum BIOEFFECT.
- Efla tæknilega þekkingu og taka virkan þátt í hugmyndavinnu í samstarfi við vöruþróun.
- Tryggja að þróunarverkefni fyrir öruggar og árangursríkar vörur séu í samræmi við nýsköpunarstefnu BIOEFFECT og að þau standist áætlaðan tímaramma og kostnað.
- Háskólagráða í raunvísindum eða háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og áhugi á samsetningu húðvara og líffræði húðarinnar.
- Góð hæfni í lausnaleit og getu til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum í hröðu og krefjandi umhverfi.
- Áhugi á nýjungum og þróun innan húðvöruiðnaðarins.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar, með getu til að miðla tæknilegum upplýsingum á skýran og markaðslegan hátt.
- Reynsla af rannsóknum og þróun húðvara eða sambærilegum iðnaði er kostur.
- Nákvæmni, góð skipulagshæfni, jákvæðni og drifkraftur.
- Góð tölvukunnátta.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur fyrir vistvænar samgöngur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Góður starfsandi og líflegt starfsumhverfi
- Öflugt starfsmannafélag













