Deloitte
Deloitte
Deloitte

Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á netöryggi, þar á meðal regluverki, áhættustýringu og stjórnarháttum, til að styrkja vaxandi netöryggisteymi okkar.

Við veitum heildstæða netöryggisráðgjöf með áherslu á reglufylgni, úttektir og eftirlit á sviði netöryggis, áhættustýringu ásamt uppbyggingu öflugra stjórnarhátta og öryggisráðstafana. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka virkan taka þátt í að greina ferla og verklag og efla netöryggi og netöryggisvarnir viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð

Meðal verkefna sem netöryggisráðgjöf sinnir eru eftirfarandi:  

  • Úttektir, gloppugreiningar og mat á fylgni við lög, reglur, stjórnunarkerfi eða innra verklag s.s. DORA, NIS2 og ISO27001 

  • Alhliða ráðgjöf og stefnumótun á sviði netöryggis og rekstrarsamfellu m.a. til að þróa og bæta netöryggisverklag 

  • Mat á stjórnarháttum og stöðu netöryggisráðstafana  

  • Áhættumat, áhættustýring og greining netöryggisáhættu  

  • Stjórnendaþjálfun og fræðsla   

Sem hluti af netöryggisteymi Deloitte muntu aðstoða viðskiptavini við að innleiða, efla og fylgja netöryggiskröfum og styðja þá í gegnum áskoranir sem leiða af breyttum netógnum og rekstrarumhverfi ásamt því að vinna að bættum viðnámsþrótti og rekstrarsamfellu.   

Hjá Deloitte færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu netöryggissamfélagi á alþjóðavísu, vinna með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum, kynnast fjölbreyttum atvinnugreinum og taka þátt í netöryggisverkefnum sem skipta sköpum fyrir rekstrarsamfellu og traust viðskiptavina.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi  

  • Þekking og reynsla af netöryggismálum, regluverki og/eða stjórnunarkerfum netöryggis 

  • Hæfni til að greina flókin verkefni af öryggi og aðlagast hratt nýjum áskorunum 

  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu   

  • Fagmennska, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð   

  • Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt  

  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli  

  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini  

  • Áhugi á gervigreind, áhættustýringu og innri/ytri úttektum   

  • Viðeigandi vottanir (ISO27001; CISSP, CISA, CISM, Security+  eða sambærilegar vottanir) eru kostur 

Fríðindi í starfi
  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
  • Styrki til nýbakaðra foreldra
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi  
Advertisement published5. August 2026
Application deadline17. August 2026
Language skills
EnskaEnska
Required
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Required
Framúrskarandi
Location
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags