Veritas
Veritas
Veritas

Sérfræðingur í rekstrarumbótum og fjármálum

Veritas leitar að öflugum sérfræðingi sem kemur að því að leiða umbætur og ferla sem skila mælanlegum árangri og styðja við áframhaldandi stafræna vegferð fyrirtækisins. Einstaklingurinn starfar innan sviðs upplýsingatækni og innviða en vinnur þvert á fyrirtækið í nánu samstarfi við ólíkar einingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni felast í að finna leiðir til að bæta verklag, einfalda og staðla ferla og styðja við hagkvæman rekstur. Viðkomandi mun vinna með rekstrar og fjármálagögn til að styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku, auka yfirsýn og greina tækifæri til umbóta og hagræðingar þvert á fyrirtækið.

Jafnframt felst í hlutverkinu að stuðla að bættu gagnaflæði milli kerfa, draga úr handvirkri vinnu og nýta tæknilausnir, sjálfvirkni og gervigreind til að einfalda og auðvelda dagleg störf. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi hlutverk með tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun, umbætur og rekstur fyrirtækisins.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í viðskiptafræði, fjármálum, rekstrarverkfræði eða sambærileg menntun með áherslu á rekstur, gögn og stafræna þróun
  • Góð reynsla af því að leiða verkefni frá hugmynd til framkvæmda
  • Sterk greiningarhæfni, góð yfirsýn og skýr hugsun
  • Áhugi og þekking á rekstrar og fjárhagsgreiningu, gögnum, sjálfvirkni og gervigreind
  • Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og drifkraftur
  • Samskiptafærni og jákvætt hugarfar
Advertisement published4. August 2026
Application deadline19. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AutomationPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Business Intelligence
Professions
Job Tags