Ofar ehf
Ofar ehf
Ofar ehf

Fulltrúi í innkaupum og tollafgreiðslu

Ofar leitar að jákvæðum, skipulögðum og talnaglöggum liðsfélaga til að ganga til liðs við öflugt innkaupateymi fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi með reynslu af tollamálum, innflutningi og innkaupum.

Starfið felur meðal annars í sér tollafgreiðslu, innflutning, dagleg innkaup, samskipti við birgja og eftirfylgni innkaupaferla. Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með gögn, bæta ferla og tryggja skilvirkt vöruflæði.

Hjá Ofar færð þú tækifæri til að taka virkan þátt í þróun innkaupa- og aðfangakeðju fyrirtækisins ásamt því að vinna náið með vörustjórum, söluteymum og öðrum lykilsviðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innflutningur, tollafgreiðsla og tollskýrslugerð

  • Umsjón með daglegum innkaupum og samskipti við innlenda og erlenda birgja

  • Samskipti og eftirfylgni við flutningsaðila

  • Eftirfylgni afhendinga, birgðastöðu og vöruframboðs

  • Bókun innkaupareikninga , kostnaðarskipting og afstemmingar

  • Verðútreikningur með kostnaðarútreikningum og greiningum

  • Samskipti og samstarf við vörustjóra og aðra innri viðskiptavini

  • Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun innkaupaferla

  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast innkaupum og aðfangakeðju

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af innflutningi, tollamálum og innkaupaferlum æskileg

  • Reynsla af bókhaldskerfum nauðsynleg, reynsla af SAP og AGR er kostur

  • Frumkvæði, skipulagsfærni, jákvæðni og góð samskiptarhæfni 

  • Mjög góð almenn tæknikunnátta og greiningarhæfni

  • Áhugi á að nýta gervigreind í innkaupa- og greiningarvinnu er kostur

  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

  • Menntun sem nýtist í starfi

Advertisement published5. August 2026
Application deadline16. August 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags