

Viltu taka þátt í sölustarfi á alþjóðlegum mörkuðum?
Star-Oddi er framsækið íslenskt tæknifyrirtæki sem þróar og framleiðir mælitæki fyrir dýra- og umhverfisrannsóknir í hafi og á landi. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru að mestu erlendir og meðal notenda eru leiðandi háskólar, rannsóknastofnanir og fyrirtæki víða um heim.
Star-Oddi leitar að jákvæðum, skipulögðum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt starf við sölustuðning, úrvinnslu pantana og skráningu hraðsendinga, alþjóðleg viðskiptasamskipti og markaðsmál. Starfið hentar einstaklingi sem vill læra, taka virkan þátt og hafa áhrif í litlu en alþjóðlegu fyrirtæki þar sem áreiðanleiki, metnaður og heiðarleiki eru höfð að leiðarljósi.
Starfið er fjölbreytt og felst meðal annars í stuðningi við söluteymi Star-Odda, samskiptum við viðskiptavini og dreifingaraðila, úrvinnslu pantana og skráningu hraðsendinga, auk reikningagerðar. Þá felur starfið einnig í sér þátttöku í stafrænni markaðssetningu, vinnu við fréttabréf, markpósta, samfélagsmiðla og aðrar stafrænar markaðsleiðir, sem og undirbúning markaðsherferða og eftirfylgni.
- Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun tölvukerfa og tölvuforrita ýmiss konar er skilyrði
- Reynsla af bókhaldskerfum er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Áhugi eða reynsla á stafrænum markaðsmálum er kostur
- Góðir samskiptahæfileikar í ræðu og riti
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
Icelandic
English










