

Verkefnastjóri á lifandi og kraftmiklum vinnustað
Þekkingarnet Þingeyinga auglýsir eftir öflugum verkefnastjóra á starfsstöð stofnunarinnar á Húsavík. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur reynslu af rekstri, góða samskiptahæfni og býr yfir frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi vinnur þvert á öll stoðsvið stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst.
Öll áhugasöm eru beðin um að senda ferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Upplýsingar um starfið veitir Lilja Rögnvaldsdóttir í síma 464-5100 og [email protected]
Umsjón með daglegum rekstri og þróun starfsemi
Áætlanagerð, uppgjör og ársreikningar
Samstarf við ráðuneyti, atvinnulíf, sveitarfélög og fræðsluaðila
Fjármögnun verkefna og gerð styrkumsókna
Samningagerð
Umsjón með leigusamningum og þjónustu við leigjendur
Launaumsýsla
Skýrslugerð, tölfræði úr starfi og miðlun upplýsinga
Kynningar, móttaka hópa og skipulag viðburða
Teymisvinna í fjölbreyttum verkefnum á stoðsviðum stofnunarinnar
Önnur tilfallandi verkefni
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Reynsla af rekstri, stjórnun og mannauðsmálum er kostur
Drifkraftur og frumkvæði í starfi
Lausnamiðuð hugsun og jákvæð lund
Góð færni í samskiptum og samstarfi
Haldgóð þekking á fagsviðum Þekkingarnetsins er kostur
Geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
Góð tölvukunnátta og tæknilæsi
Gott vald á íslensku og ensku
Icelandic
English










