Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á Stuðlum

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar þrjár stöður ráðgjafa á Stuðlum, meðferðarheimili fyrir unglinga. Um er að ræða 100% stöður ráðgjafa í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra og sálfræðinga.
  • Meðferðarvinna og vinna að tómstundastarfi með skjólstæðingum.
  • Umönnun og gæsla skjólstæðinga.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila. 
  • Vinna eftir verklagsreglum Stuðla.
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Mjög gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. við öryggisgæslu, meðferðar-, tómstunda- eða íþróttastarf.
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
  • Gild ökuréttindi.
  • Hreint sakavottorð.
  • Einnig er lögð áhersla á persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.
Advertisement published19. September 2025
Application deadline10. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Optional
Advanced
Location
Fossaleynir 17, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags