
Hjallastefnan
Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna. Hjallastefnan rekur í dag 14 leikskóla og þrjá grunnskóla.
Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands.
Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta.
Skólar Hjallastefnunnar starfa sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.

Óskum eftir að ráða Leikskólakennara eða starfsmann/konu á leikskólann Vífilsholt í Garðabæ
Langar þig að taka þátt i að skapa öruggt, hlýlegt og gleðiríkt umhverfi fyrir yngstu börnin okkar?
Leikskólinn Vífilsholt leitar að jákvæðum,umhyggjusömum og áhugasömum Leikskólakennara eða starfsmanni/-konu til starfa.
Í Vífilsholti störfum við eftir hugmyndafæði Hjallastefnunnar þar sem jafnrétti, jákvæð samskipti, virðing og vellíðan barnanna eru í forgrunni.
Við leitum af þér sem:
- Hefur gaman af að vinna með ungum börnum
- Ert jákvæður og átt auðvelt með samstarf
- Sýnir umhyggju, virðingu og þolinmæði.
- Átt auðvelt með samskipti
Við bjóðum upp á:
- Hlýlegt og skemmtilegt starfsumhverfi -(Dásamlega náttúru í kring -Vífilstaðir)
- Tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á daglegt líf og þroska barnanna.
- Fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem engir tveir dagar eru eins.
Ef þú hefur áhuga á að vera með okkur í liði, þá viljum við gjarnarn heyra frá þér! ❤️
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennara menntun eða önnur kennaramenntun æskileg - en þó ekki litið fram hjá umsókn góðs starfskrafts án menntunar.
Advertisement published13. October 2026
Application deadline28. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Type of work
Skills
ReliabilityProactiveHonestyHuman relationsConscientiousWorking under pressure
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Umsjónarkennari óskast vegna forfalla
Helgafellsskóli

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Verkefnastjóri listasmiðju (atelierista)
Leikskólinn Maríuborg

Óskum eftir leikskólakennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Kennari óskast til starfa - frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Leikskólakennari óskast
Fagrabrekka

Skóla- og frístundaliði í Drekasel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi - atferlisfræðingur
Stekkjaskóli