Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Þroskaþjálfi - atferlisfræðingur

Óskað er eftir þroskaþjálfa, atferlisfræðingi eða öðrum sérfræðingi á sviði uppeldis- og menntunarfræða í 100% starf frá með 1. nóvember eða eftir samkomulagi. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem starfar í nánu samstarfi við kennara í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.

Viðkomandi sérfræðingur vinnur í stoðþjónustuteymi skólans og veitir m.a. leiðsögn og ráðgjöf til foreldra og annarra starfsmanna. Hann styður við nám og atferlisþjálfun nemenda, í samstarfi við umsjónarkennara, er þurfa á sértækum stuðningi að halda í skólastarfinu og daglegum athöfnum.

Eitt af meginverkefnum sérfræðingsins er sértæk vinna með barn sem þarf mikinn stuðning og atferlisþjálfun.

Stekkjaskóli er grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Í skólanum eru um 450 nemendur. Fullbyggður verður skólinn fyrir um 550 nemendur í 1.-10. bekk.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
  • Sérfræðingur vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og forráðamenn nemendí samráði við deildarstjóra. Tekur jafnframt þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum  
  • Ber ábyrgð á að tryggja öryggi og velferð nemenda sinna
  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Krafa um háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar eða atferlisþjálfunar eða aðra háskólamenntun á sviði uppeldis- og kennslufræða
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð   
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum  
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Advertisement published9. October 2026
Application deadline26. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Heiðarstekk 10
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags