
RÚV
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.

Menningarritstjóri
RÚV leitar að menningarritstjóra. Í starfinu felst mótun og framsetning menningarefnis fyrir vef og þátttaka í ritstjórn menningarefnis þvert á deildir. Starfið er krefjandi og fjölbreytt og reynir á leiðtogahæfni og framsýni.
Menningarritstjóri getur tekið frumkvæði og leiðbeint öðrum og stuðlað að virku og skapandi samstarfi. Hann vinnur náið með frétta- og dagskrárgerðarfólki, frétta- og dagskrárstjórum. Starfið heyrir undir dagskrárstjóra Rásar 1.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ritstjórn, framleiðsla, hugmyndavinna og þátttaka í efnisvali.
- Fagleg rýni, leiðsögn og stuðningur í ritstjórnarvinnu.
- Yfirsýn og skipulagning verkefna.
- Þróun og innleiðing nýrra leiða í framsetningu og miðlun menningarefnis.
- Efling þátttöku og aðgengis ólíkra hópa í samræmi við stefnu RÚV.
- Þátttaka í mótun dagskrárstefnu.
- Stuðla að góðum samskiptum og samstarfi milli starfseininga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af blaðamennsku, sjónvarps- eða fjölmiðlavinnu. Reynsla af ritstjórn er kostur.
- Reynsla af og þekking á íslensku menningarlífi.
- Leiðtogahæfni og geta til að leiðbeina og efla aðra í starfi.
- Skipulagshæfni, framsýni, frumkvæði og hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
- Framúrskarandi samskipta- og samvinnufærni.
- Framúrskarandi vald á íslenskri tungu.
Advertisement published30. March 2026
Application deadline19. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Dagskrárgerðarmaður í Kastljósi
RÚV

Vöru- og verkefnastjóri
Stafrænt Ísland

Viðhaldstæknimaður fyrir vélmenni / Robot maintenance technician
NEWREST ICELAND ehf.

Verkefnastjóri þróunar fjarnáms og kennslukerfa
Háskólinn á Bifröst

Deildarstjóri Viðskiptafræðideildar
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Sérfræðingur á eigna- og viðhaldssviði
Félagsbústaðir

Verkefnastjóri á framkvæmdasviði
Klasi

Fréttamaður á fréttastofu Sýnar
Sýn

Skrifstofustjóri
Stekkjaskóli

Framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands
Skautasamband Íslands

Sérfræðingur í málefnum viðtökuríkja Uppbyggingarsjóðs EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Sérfræðingur í málefnum Rúmeníu hjá Uppbyggingarsjóði EES
Financial Mechanism Office (FMO)