Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Verkefnastjóri þróunar fjarnáms og kennslukerfa

Háskólinn á Bifröst leitar að öflugum og framsæknum verkefnastjóra til starfa í 100% stöðu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem áhersla er lögð á þróun stafrænnar kennslu, fjarnáms og kennslukerfa. Starfið er tvíþætt: annars vegar felur það í sér umsjón og þróun kennslukerfa og hins vegar þátttöku í þróun fjarnáms ásamt stuðningi við kennara í stafrænu kennsluumhverfi.
Starfsstöðvar háskólans eru í Reykjavík og á Hvanneyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun á kennslukerfi háskólans (Canvas).
  • Innleiðing og eftirfylgni breytinga á kennslukerfi háskólans.
  • Þróun og innleiðing lausna í stafrænum kennsluháttum og fjarnámi.
  • Þróun og innleiðing breytinga í próffræðum í stafrænu umhverfi.
  • Tæknileg og fagleg aðstoð við kennara, m.a. varðandi upptökur á fyrirlestrum og miðlun kennsluefnis.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við framkvæmdastjóra kennslu og upplýsingatæknisviðs.

    Starfsmaður skal í störfum sínum fylgja reglugerð Háskólans á Bifröst, gæðahandbók háskólans og skriflegum tilskipunum og leiðbeiningum á hverjum tíma.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaranám á sviði menntunarfræða eða á öðru sviði sem nýtist í starfi. 
  • Reynsla af þróun á kennslu og/eða prófakerfum er kostur. 
  • Góð almenn tölvuþekking og þekking á stafrænum kennsluháttum. 
  • Reynsla af kennslu og þekking á háskólasamfélaginu er kostur. 
  • Menntun eða reynsla af upplýsingatækni í kennslu og námi er kostur. 
  • Góð hæfni í stýringu verkefna og skipulagshæfni. 
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og rík þjónustulund. 
  • Góð samskiptahæfni og færni til að vinna með fjölbreyttum hópum. 
  • Góð íslensku og ensku kunnátta bæði í rituðu og töluðu máli. 
Advertisement published26. March 2026
Application deadline16. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Reykjavík, 101 Reykjavík
Hvanneyri, 311 Hvanneyri
Type of work
Professions
Job Tags