Financial Mechanism Office (FMO)
Financial Mechanism Office (FMO)
Financial Mechanism Office (FMO)

Sérfræðingur í málefnum Rúmeníu hjá Uppbyggingarsjóði EES

Viltu stuðla að félagslegum og efnahagslegum jöfnuði í Evrópu?

Skrifstofa Uppbyggingarsjóðs EES (Financial Mechanism Office – FMO) í Brussel leitar að sérfræðingi í málefnum Rúmeníu.

Starfið felur í sér að stuðla að góðri framkvæmd verkefna á vegum Uppbyggingarsjóðsins í Rúmeníu. Í því felst m.a. að undirbúa og fylgja eftir ársfundum í landinu og taka þátt í viðræðum um samstarf og samninga undir merkjum sjóðsins. Sérfræðingurinn veitir ráðgjöf um sjóðinn til rúmenskra stjórnvalda og styður við tvíhliða samstarf á hans vegum.

Sérfræðingurinn vinnur með öðrum sérfræðingum á skrifstofu Uppbyggingarsjóðsins að innleiðingu stuðnings á vegum sjóðsins í Rúmeníu og miðlar upplýsingum um þróun á sviði stjórnmála, samfélags og efnahags í landinu. Hann greinir áhættu í tengslum við starfsemi sjóðsins og fylgist með þróun á evrópskum vettvangi.

Sérfræðingurinn mun að öllum líkindum bera ábyrgð á einu öðru viðtökuríki auk Rúmeníu. Skrifstofa Uppbyggingarsjóðsins tekur ákvörðun um hvernig ábyrgð á viðtökuríkjum er deilt á milli starfsmanna byggt á reynslu þeirra, þekkingu og þörfum stofnunarinnar. Að þessu sinni er sérstaklega leitað að fólki sem hefur jafnframt góða þekkingu á málefnum Króatíu, Tékklands og Slóveníu.

EES-samningurinn tryggir Íslandi aðild að innri markaði ESB. Hluti af meginmarkmiðum samningsins er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði í Evrópu og efla samstarf milli aðildarríkjanna. Uppbyggingarsjóður EES er framlag Íslands til þessara markmiða. Nú er unnið að undirbúningi áætlana fyrir fjármögnunartímabilið 2021-2028. Heildarfjárveiting á tímabilinu er 3,2 milljarðar evra sem skiptist á milli 15 viðtökuríkja.

https://jobs.efta.int/wd/plsql/wd_portal.show_job?p_web_site_id=564&p_web_page_id=607329

Advertisement published18. March 2026
Application deadline12. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Avenue des Arts 19H, 1000 Brussels, Belgium, 999 Belgium
Type of work
Professions
Job Tags