

Sérfræðingur í grænum umskiptum hjá Uppbyggingarsjóði EES
Viltu leggja þitt af mörkum til grænna umskipta og grænnar verðmætasköpunar í Evrópu? Viltu taka
þátt í að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði á milli ríkja Evrópska efnahagssvæðisins?
Skrifstofa Uppbyggingarsjóðs EES (Financial Mechanism Office – FMO) í Brussel leitar að tveimur
sérfræðingum, annars vegar á sviði grænna umskipta og hins vegar á sviði grænnar viðskiptaþróunar
og nýsköpunar.
Sérfræðingur sjóðsins á sviði grænna umskipta ber ábyrgð á áætlunum sem miða að því að styrkja
getu viðtökuríkjanna til að hrinda grænum umskiptum í framkvæmd. Sérfræðingurinn nýtir
fagþekkingu sína til að styðja við undirbúning áætlana, þróun þeirra og framkvæmd og leiðir
þverfagleg teymi á skrifstofu Uppbyggingarsjóðsins. Í starfinu felst að byggja upp og viðhalda góðum
samskiptum við samstarfsaðila sjóðsins og veita faglega ráðgjöf til gjafa- og viðtökuríkjanna.
Sérfræðingur sjóðsins á sviði grænnar viðskiptaþróunar og nýsköpunar ber ábyrgð á áætlunum sem
miða að því að efla grænan iðnað og tækniþróun í viðtökuríkjunum og stuðla að grænum vexti og
samkeppnishæfni. Sérfræðingurinn nýtir fagþekkingu sína til að styðja við undirbúning áætlana,
þróun þeirra og framkvæmd og leiðir þverfagleg teymi á skrifstofu Uppbyggingarsjóðsins. Í starfinu
felst að byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við samstarfsaðila sjóðsins og veita faglega
ráðgjöf til gjafa- og viðtökuríkjanna.
EES-samningurinn tryggir Íslandi aðild að innri markaði ESB. Hluti af meginmarkmiðum samningsins
er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði í Evrópu og efla samstarf á milli
aðildarríkjanna. Uppbyggingarsjóður EES er framlag Íslands til þessara markmiða. Nú er unnið að
undirbúningi áætlana fyrir fjármögnunartímabilið 2021-2028. Heildarfjárveiting á tímabilinu er 3,2
milljarðar evra sem skiptist á milli 15 viðtökuríkja.
https://jobs.efta.int/wd/plsql/wd_portal.show_job?p_web_site_id=564&p_web_page_id=607267
English