Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Verkefnastjóri á hjúkrunardeild - Nesvellir (tímabundin ráðning)

Hrafnista Nesvöllum óskar eftir að ráða til sín verkefnastjóra á hjúkrunardeild í 100% starfshlutfall.

Um tímabundið starf er að ræða í u.þ.b. eitt ár.

Verkefnastjóri á hjúkrunardeild vinnur náið með deildarstjórum og forstöðumanni og sinnir vaktaskýrslugerð, aðstoðar við ráðningar og móttökuferli á nýliðum auk þess að sinna fjölbreyttum verkefnum sem til falla á deildunum.

Við leitum af jákvæðum, sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi sem er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt verkefni í skemmtilegu og lifandi umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gerð vaktarskýrslna og eftirlit með tímaskráningum
  • Eftirlit og skráning á orlofi, vinnuskyldu og þ.h.
  • Aðstoð við ráðningar og móttöku nýs starfsfólks
  • Fjölbreytt verkefni sem snúa að starfsemi heimilisins
  • Almenn ritarastörf og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vaktaskýrslugerð eða haldbær reynsla í vaktavinnu á hjúkrunardeild kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi kostur
  • Góð tölvufærni nauðsynleg
  • Jákvæðni, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar
  • Nákvæmni og skipulagshæfni
  • Góð greiningarhæfni
  • Þekking á kjarasamningum er kostur
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Heitur matur í hádeginu
  • Fjölskylduvænt og sveigjanlegt starfsumhverfi
Advertisement published12. March 2026
Application deadline22. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags