Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins

Sumarstarfsmaður hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins

Sumarstarfsmaður hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins/Visit Reykjavík

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins/Visit Reykjavík leitar að öflugum sumarstarfsmanni til að sinna verkefnum tengdum kortlagningu og þróun á útivistarvef fyrir höfuðborgarsvæðið utumallt.is. Á vefnum má finna gagnlegar upplýsingar um vinsæl útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir. Leitað er eftir sumarstarfsmanni sem hefur m.a. áhuga á útivist til þess að afla og skrá frekari upplýsingar um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu.

Auk þess mun starfsmaðurinn sinna almennri upplýsingagjöf um áfangastaðinn og öðrum tilfallandi verkefnum eins og við á.

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins þróar og markaðssetur áfangastaðinn í heild. Áhersla er á að efla atvinnustarfsemi og auka gjaldeyristekjur með sjálfbærni að leiðarljósi.

    Helstu verkefni og ábyrgð

    Helstu verkefni og ábyrgð

    • Öflun upplýsinga um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu
    • Skráning upplýsinga í gagnagrunn útivistarvefs
    • Aðstoð við svörun fyrirspurna um áfangastaðinn
    • Önnur tilfallandi verkefni
    Menntunar- og hæfniskröfur

    Menntunar- og hæfniskröfur

    Við leitum að starfsmanni í háskólanámi með

    • Áhuga á þróun áfangastaða, útivist og ferðaþjónustu
    • Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
    • Góða samskiptahæfni
    • Góða íslensku og ensku kunnáttu
    • Æskilegt er að starfsmaður sé í háskólanámi

    Verkefnið er tilvalið fyrir háskólanemendur t.d. í ferðamálafræði, skipulagsfræði eða öðrum skyldum greinum. 

    Advertisement published9. March 2026
    Application deadline29. March 2026
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Expert
    EnglishEnglish
    Required
    Expert
    Location
    Ármúli 13, 108 Reykjavík
    Type of work
    Suitable for
    Professions
    Job Tags