
Fagkaup ehf
Fagkaup veitir byggingar-, iðnaðar- og veitumarkaði virðisaukandi þjónustu.
Innan Fagkaupa eru verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, S. Guðjónsson, Varma og Vélarverk, K.H. vinnuföt, Áltak, Fossberg og Hagblikk. Fagkaup á einnig 70% hlut í DS Lausnum.
Rúmlega þrjúhundruð starfsmenn starfa hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.
Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Í Mannauðsstefnu Fagkaupa er lögð áhersla á tækifæri til starfsþróunnar og vaxtar í starfi með öflugu fræðslustarfi og fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem heilsutengdar forvarnir skapa góðan vinnustað með vellíðan starfsfólks að leiðarsljósi.

Innkaupastjóri Fagkaupa
Fagkaup leitar að öflugum innkaupastjóra til að leiða innkaupasvið fyrirtækisins. Um er að ræða spennandi starf í traustu fyrirtæki.
Innkaupastjóri ber m.a. ábyrgð á að stýra innkaupum fyrirtæksins með það að markmiði að tryggja hagkvæm innkaup, áreiðanlega birgja, skilvirka birgðastýringu og gagnsæ innkaupaferli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mótun og framkvæmd innkaupastefnu fyrirtækisins.
- Umsjón með daglegum innkaupum og gerð langtíma innkaupaáætlana.
- Samningaviðræður við birgja og þjónustuaðila, þar á meðal verð, gæði og afhendingarskilmála.
- Reglulegt mat á frammistöðu birgja og áhættugreining á aðfangakeðju.
- Markviss kostnaðargreining og leit að tækifærum til sparnaðar eða hagræðingar.
- Greining gagna og gerð reglulegra skýrslna um innkaup, birgðastöðu og árangur.
- Tryggja að innkaup séu í samræmi við lög, reglugerðir og innri verklagsreglur.
- Innkaupastjóri leiðir og stýrir starfsfólki innkaupasviðs, þar á meðal skipulagi verkefna, þjálfun, leiðsögn og frammistöðustjórnun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði, verkfræði, rekstri, birgðakeðjustjórnun eða sambærilegum greinum.
- Reynsla af innkaupum, samningagerð og samskiptum við birgja er skilyrði.
- Reynsla af stjórnun eða leiðtogahlutverki er kostur.
- Sterk viðskiptavitund og rekstrarskilningur með áherslu á hagkvæmni, verðmyndun og kostnaðarstýringu.
- Reynsla af samningaviðræðum við innlenda og erlenda birgja.
- Góð þekking á birgðastjórnun, flutningum og aðfangakeðju.
- Hæfni til að leiða umbætur og þróa innkaupaferla sem styðja við vöxt og skilvirkni.
- Mjög góð samskiptahæfni og samstarfsvilji þar sem starfið krefst náins samstarfs við sölu, rekstur og fjármál.
- Greiningarhæfni og skipulagshæfni með getu til að vinna með gögn, kostnað og árangursmælikvarða.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Framsýni og stefnumótandi hugsun
- Árangursdrifinn og lausnamiðaður
- Fagmennska og öguð vinnubrögð
- Sterk leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp samstarf
- Áhugi á umbótum og þróun innkaupa og aðfangakeðju
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegsimatur.
- Líkamsræktarstyrkur.
- Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta.
Að auki bjóðum við:
- Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
- Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
- Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
- Afsláttarkjör af vörum félagsins
- Sveigjanlegt starfsumhverfi
- Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi
Advertisement published16. March 2026
Application deadline31. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
ConscientiousIndependenceCustomer service
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í málefnum viðtökuríkja Uppbyggingarsjóðs EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Sérfræðingur í málefnum Rúmeníu hjá Uppbyggingarsjóði EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Sérfræðingur í rannsóknum og nýsköpun hjá Uppbyggingarsjóði EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Sumarstarf í móttöku og bókhaldi
Colas Ísland ehf.

Framleiðslustjóri
Freyja

Sölu- og markaðsstjóri / Head of Growth
Pikkoló ehf.

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri samgöngumála
Reykjanesbær

Innkaupafulltrúi rekstrarvöru og tækifærisgjafa hjá Pennanum
Penninn Eymundsson

Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ
Alþýðusamband Íslands

Sumarstarf hjá Landi og skógi á Norðurlandi eystra
Land og skógur

Starfskraftur afgreiðslu á Höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf

Verkefnastjóri borholuframkvæmda
Veitur