

Sölu- og markaðsstjóri / Head of Growth
Vilt þú taka þátt í að byggja upp eitt ferskasta nýsköpunarfyrirtæki Íslands?
Pikkoló leitar nú að öflugum sölu- og markaðsstjóra með metnað og drifkraft til að leiða næsta vaxtarfasa fyrirtækisins.
Pikkoló er spennandi nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun á sjálfbæru dreifikerfi fyrir matvöruverslanir á netinu. Meginmarkmið Pikkoló er að hjálpa fólki að nálgast mat- og dagvörur í nærumhverfi sínu með snjallari og umhverfisvænni hætti.
Hlutverk þitt sem sölu- og markaðsstjóri Pikkoló:
-
Leiða vaxtarstefnu: Móta og framkvæma markaðs- og söluáætlanir sem skila mælanlegum árangri.
-
Viðskiptaþróun: Finna ný tækifæri, útvíkka dreifikerfið og byggja upp sterk tengsl við verslanir og aðra samstarfsaðila.
-
Stafræn markaðssetning: Stýra ásýnd Pikkoló á samfélagsmiðlum og skipuleggja markvissar herferðir.
-
Gagndrifin stjórnun: Setja upp mælikvarða (KPIs), greina gögn og fínstilla ferla til að hámarka árangur.
Við leitum að einstaklingi sem hefur:
-
Reynslu af sölu- og markaðsmálum (reynsla úr nýsköpun eða matvörugeiranum er mikill kostur).
-
Djúpa þekkingu á stafrænni markaðssetningu og nýtingu gagna.
-
Framúrskarandi samskiptahæfileika og drifkraft til að vinna sjálfstætt.
-
Brennandi áhuga á tækni, sjálfbærni og viðskiptaþróun.
Hvað bjóðum við þér upp á:
-
Lykilhlutverk: Þú ert meðstjórnandi á okkar vegferð og hefur mikið um það að segja hvernig fyrirtækið þróast.
-
Sveigjanleika: Við leggjum áherslu á árangur fremur en viðveru.
-
Spennandi starfsumhverfi: Þú verður hluti af litlu, samhentu teymi í skapandi nýsköpunarumhverfi.
Icelandic
English










