
STOÐ
Stoð er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, stofnað 1982. Markmið Stoðar er að bæta lífsgæði með því að bjóða upp á heildarlausnir fyrir einstaklinga með fötlun, áverka og sjúkdóma og þá sem vilja fyrirbyggja heilsufarsvandamál. Auk þess að þjónusta og veita lausnir fyrir heilbrigðisstofnanir. Innan Stoðar starfar samhentur hópur fagfólks á heilbrigðissviði sem vinnur í sameiningu að því að finna bestu lausnirnar fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.

Spennandi starf á heilbrigðistæknimarkaði
Viltu vera í hópi metnaðarfullra starfsmanna hjá vaxandi fyrirtæki á heilbrigðistæknimarkaði? STOÐ leitar að starfskrafti fyrir hjúkrunarvörur og lækningatæki í fjölbreytt og krefjandi starf viðskiptastjóra.
Starfið hentar hjúkrunafræðingi sem hefur áhuga á heilbrigðistækni, nýtur þess að byggja upp traust viðskiptasambönd og vill hafa raunveruleg áhrif á innleiðingu og notkun lausna í heilbrigðisþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Markaðssetning á hjúkrunarvörum og lækningatækjum til heilbrigðisstofnana
- Innleiðing á nýjum vörum auk fræðslu og eftirfylgni
- Tengslamyndun og gott samstarf við viðskiptavini
- Samskipti við erlenda birgja
- Greining vaxtartækifæra í verkefnum tengd nýjum spítala
- Þátttaka á ráðstefnum og fundum innanlands og erlendis
- Útboðs- og tilboðsgerð
- Vörustýring og þátttaka í þróun vöruframboðs
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarfræði eða önnur heilbrigðismenntun er skilyrði
- Þekking á sviði lækningatækja, tækni og hugbúnaðalausna er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi eða á heilbrigðisstofnunum er kostur
- Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðmót
- Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til að ná árangri í starfi
- Færni í mannlegum samskiptum
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Advertisement published4. March 2026
Application deadline15. March 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
DriveProactiveNursePositivityHuman relationsMarketingAmbitionPlanningSalesProduct management
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í gæðamálum / Quality Specialist
ChitoCare medical

Starfsmaður í gleraugnaverslun Eyesland Kringlunni
Eyesland Gleraugnaverslun

Kúnígúnd og Ibúðin - Fullt starf
Kúnígúnd

Sölumaður – Signa / Fást / Ásborg
Signa ehf

Service Agent - KEF airport
Avis og Budget

Verslunarstörf í ELKO Akureyri
ELKO

Hjúkrunarfræðingur í augnaðgerðum - Lentis ehf
Augnlæknar Reykjavíkur

Sölumaður - pottar og saunur
Trefjar ehf

Sölufulltrúi/Starfsmaður fyrir heildverslun/verslun fullt starf
Gullskógar

Product Manager
Arctic Adventures

Sölufulltrúi í verslun - Sumarstarf
Smiðjan Fönix ehf.

Söluráðgjafi í stóma- og þvagleggjaþjónustu
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni