
Mi búðin
Mi búðin er viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili fyrir snjalltækjaframleiðandann Xiaomi, einnig þekkt sem einfaldlega Mi.
Mi á Íslandi rekur Mi búðina ásamt Mi verkstæði, bæði staðsett í Ármúla 21.
Þó Xiaomi sé tiltölulega nýtt fyrirtæki þá hefur það skipað sér sterkan sess í tækniheiminum með áreiðanlegum tækjum á góðu verði. Frá árinu 2014 hefur Xiaomi verið einn af fimm stærstu farsímaframleiðendur í heiminum og stærsti farsímaframleiðandi í Asíu. Eitt vinsælasta rafmagnshlaupahjól landsins og þó víðar væri leitað er Mi Electric Scooter.

Markaðsstjóri
Mi búðin leitar að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi til að sjá um markaðsstarf fyrirtækisins. Um er að ræða nýtt starf þar sem unnið er náið með stjórnendum Mi búðarinnar við að móta stefnu fyrirtækisins í markaðsmálum. Leitað er að starfskrafti sem getur unnið sjálfstætt og komið hlutunum í framkvæmd.
Starfið er fjölbreytt og snýr að heildarútliti Mi búðarinnar, markaðssetningu í vefverslun og verslun, herferðum og efnissköpun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mótun vörumerkis: Ábyrgð á heildarútliti og ímynd Mi búðarinnar þvert á alla miðla.
- Móta og keyra markaðsáætlun (markmið, herferðir, tímalínur, forgangsröðun).
- Skipuleggja og framkvæma herferðir fyrir vefverslun og verslun (t.d. tilboð og nýjar vörur).
- Greining: Fylgjast með árangri herferða og fínstilla markaðsstarfið jafnt og þétt.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af markaðssetningu eða sambærilegu hlutverki.
- Geta til að vinna sjálfstætt, hafa frumkvæði og klára verkefni.
- Skipulagshæfni og geta til að forgangsraða fjölbreyttum verkefnum.
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku.
Kostir en ekki skilyrði:
- Meta Ads / Google Ads, SEO, póstlistar (t.d. Klaviyo/Mailchimp).
- Reynsla af WooCommerce / vefverslunum og hagræðingu á söluflæði (CRO).
- Mynd-/myndbandsefnisvinnsla eða reynsla af efnissköpun.
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Mikil áhrif og sjálfstæði í starfi
- Blönduð vinna / fjarvinna hluta vikunnar
- Starfsmannaafsláttur
- Styrkur til fræðslu og námskeiða
Advertisement published12. March 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Ármúli 21, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
AdWordsAdvertisingCanvaEmail marketingFacebookFacebook Business ManagerProactiveGoogleGoogle AdsGoogle AnalyticsGoogle Data StudioDesigning proceduresSearch Engine Optimization (SEO)MailchimpHuman relationsMarket analysisMarketingMarket researchOnline marketingAmbitionDefinition of target groupsBrand management
Professions
Job Tags
Similar jobs (10)

Viðskiptastjóri - Novo Nordisk
Vistor

AI-Driven Growth Marketing Manager
PLAIO

Ert þú okkar næsti sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu?
Alfreð

Sölu og markaðsmál - hlutastarf
Ráðlagður Dagskammtur

Birtingastjóri stafrænna miðla
Basic Markaðsstofa

Sölufulltrúi/Starfsmaður fyrir heildverslun/verslun fullt starf
Gullskógar

Sölu- og markaðsfulltrúi í tímabundið starf
Strætó bs.

MARKAÐS- OG KYNNINGARFULLTRÚI
Rangárþing Ytra

Sumarstarf: Skrifstofu- og þjónustufulltrúi
Hornsteinn ehf

Markaðsstjórn með áherslu á leitarvélabestun, netauglýsingar og samfélagsmiðla
Þorbergsson og Loftsdóttir sf.