Basic Markaðsstofa
Basic Markaðsstofa
Basic Markaðsstofa

Birtingastjóri stafrænna miðla

Vegna aukinna umsvifa leitum við hjá Basic Markaðsstofu að birtingastjóra til að sjá um birtingar á stafrænum miðlum (Meta og Google).

Basic veitir fjölda íslenskra fyrirtækja heildstæða vef- og markaðsþjónustu með áherslu á stafræna miðla. Hjá Basic starfar níu manna alþjóðlegt teymi, þar af eru þrír starfsmenn á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að einstaklingi sem:

• hefur góða íslensku- og enskukunnáttu í töluðu og rituðu máli
• hefur gott vald á textasmíði
• hefur góða þekkingu á samfélagsmiðlum
• hefur reynslu af auglýsingakerfi Google
• hefur reynslu af auglýsingakerfi Meta
• hefur a.m.k. grunnþekkingu á Canva
• getur stýrt verkefnum og átt í beinum samskiptum við viðskiptavini og aðra starfsmenn Basic erlendis
• er lausnamiðaður og sýnir frumkvæði þegar kemur að tækninýjungum
• sækist eftir áskorunum og er sjálfstæður í vinnubrögðum
• hefur góða samskipta- og samvinnuhæfni
• er ábyrgur og hugmyndaríkur

Kostir fyrir starfið:

• þekking og reynsla í stafrænni markaðssetningu
• hæfni í grafískri hönnun
• þekking á WordPress vefumsjónarkerfinu
• reynsla af öðrum markaðsstörfum
• reynsla af framleiðslu markaðsefnis

Menntunar- og hæfniskröfur

Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið háskólanámi í markaðsfræði.

Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

• góða starfsaðstöðu
• tækifæri til að vaxa í starfi og sérhæfa sig frekar
• tækifæri til að starfa með framsæknum íslenskum fyrirtækjum í alþjóðlegu teymi
• sveigjanleika í starfi

Advertisement published9. March 2026
Application deadline20. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Sundaborg 9, 104 Reykjavík
Type of work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags