Lux veitingar ehf.
Lux veitingar ehf.
Lux veitingar ehf.

Matreiðslumenn á Brasserie Ask

Brasserie Askur leitar að öflugum og reynslumiklum matreiðslumönnum, annars vegar í vaktavinnu (2-2-3) með möguleika á stöðu yfirmatreiðslumanns og þá hins vegar í stöðu matreiðslumanns í dagvinnu (mötuneytisþjónustu), til að ganga til liðs við samhent og metnaðarfullt teymi okkar.

Brasseri Askur er einn elsti og rótgrónasti veitingastaður landsins, staðsettur í hjarta Reykjavíkur. Við höfum lengi verið þekkt fyrir fjölbreyttan og bragðgóðan mat í afslöppuðu og notalegu umhverfi þar sem fjölskyldur, vinir og samstarfsfólk koma saman og njóta góðrar þjónustu og matargerðar.

Helstu verkefni:

  • Undirbúningur og eldamennska samkvæmt matseðli

  • Viðhald á hreinlæti og skipulagi í eldhúsi

  • Samvinna við annað eldhús- og þjónustufólk

  • Gæta að gæðum og stöðugleika í framreiðslu

  • Virðing fyrir verklagsreglum og öryggisstöðlum

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af eldhússtörfum nauðsynleg

  • Jákvætt viðmót og þjónustulund

  • Hæfni til að vinna undir álagi

  • Frumkvæði, sjálfstæði og snyrtimennska

  • Hreint sakavottorð

Við bjóðum:

  • Skemmtilegan og lifandi vinnustað með góðum starfsanda

  • Sveigjanlegar vaktir og sanngjörn launakjör

  • Tækifæri til að læra og þróast í starfi

  • Vaktavinna – bæði dag- og kvöldvaktir

Ef þú hefur brennandi áhuga á matargerð og vilt vera hluti af reynslumiklu og samheldnu teymi, þá viljum við endilega heyra frá þér!

Athugið að unnið er úr umsóknum um leið og þær berast.

Umsóknir og fyrirspurnir má senda á [email protected], vinsamlega tiltakið um hvora stöðuna umræðir, eða hérna í gegnum Alfred.is

Menntunar- og hæfniskröfur

 

Advertisement published22. December 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Kitchen workPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Cook
Professions
Job Tags