Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ljósmóðir - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar eftir að ráða áhugasama og drífandi ljósmóður í 40-60% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Ljósmóðir mun starfa í þverfaglegu teymi með annarri ljósmóður, læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta.


Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið ljósmæðra er við meðgönguvernd, ungbarnavernd og leghálsskimanir

Meðgönguvernd
Markmið meðgönguvernd er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu. Meðgönguvernd er höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á.

Ung- og smábarnavernd
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.

Leghálsskimanir
Heilsugæslunni hefur verið falin framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi og annast ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sýnatökur vegna skimunarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsleyfi sem ljósmóðir
  • Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
  • Reynsla af leghálsskimunum kostur
  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
  • Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Advertisement published1. April 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Suðurströnd 12, 170 Seltjarnarnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags