

Fagstjóri greiningateyma hjá Geðheilsumiðstöð barna
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að faglegum leiðtoga til að leiða og þróa starfsemi greiningateyma hjá Geðheilsumiðstöð barna. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af teymisvinnu í geðheilbrigðisþjónustu.
Fagstjóri greiningateyma mun bera ábyrgð á starfsemi greiningateyma yngri barna 6-12 ára og eldri barna 12-18 ára, vera faglegur leiðtogi og halda utan um mannauðstengd mál. Þetta er frábært tækifæri fyrir framsækinn einstakling sem vill taka þátt í krefjandi og spennandi verkefnum.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. Hjá Geðheilsumiðstöð barna starfa fjögur teymi í klínísku starfi, greiningarteymi yngri barna sem sinnir börnum á aldrinum 6-12 ára, greiningarteymi eldri barna sem sinnir börnum á aldrinum 12-18 ára, ráðgjafar- og meðferðarteymi og fjölskylduteymi 0-5 ára.
Um er að ræða 100% starf og ráðið er í starfið frá 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
- Ber ábyrgð á faglegri starfsemi greiningateyma og tekur þátt í þróun Geðheilsumiðstöðvarinnar
- Ber ábyrgð á mannauðstengdum málum
- Heldur utan um starfsemi teymisins og ber ábyrgð á heildarþjónustu við skjólstæðinga
- Ber ábyrgð á þróun og uppbyggingu teyma í samráði við forstöðumann
- Hefur umsjón með gæða-, öryggis- og umbótavinnu teyma
- Heldur utan um heildarflæði mála og verkefna
- Veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda
- Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
- Veitir ráðgjöf til fagfólks og tilvísenda
- Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu, jákvæðum starfsanda og vellíðan starfsmanna
- Íslenskt starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmaður útgefið af Embætti landlæknis
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
- Víðtæk reynsla á sviði geðheilbrigðismála
- A.m.k. 5 ára reynsla af greiningar- og/eða meðferðarstarfi
- Reynsla af stjórnun æskileg
- Reynsla af gæða- og verkefnastjórnun kostur
- Þekking og reynsla á sviði mannauðsmála kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
- Framsýni og lausnamiðuð hugsun
- Góð færni í að vinna í þverfaglegu teymi
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta og gott vald á rituðu íslensku máli
- Góð enskukunnátta
Heilsustyrkur
Samgöngustyrkur
Icelandic
























