Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Fagstjóri meðferðateyma hjá Geðheilsumiðstöð barna

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að faglegum leiðtoga til að leiða og þróa starfsemi meðferðateyma hjá Geðheilsumiðstöð barna. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af teymisvinnu í geðheilbrigðisþjónustu.

Fagstjóri meðferðateyma mun bera ábyrgð á starfsemi fjölskylduteymis 0-5 ára og ráðgjafar- og meðferðarteymis, vera faglegur leiðtogi og halda utan um mannauðstengd mál. Þetta er frábært tækifæri fyrir framsækinn einstakling sem vill taka þátt í spennandi verkefnum.

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. Hjá Geðheilsumiðstöð barna starfa fjögur teymi í klínísku starfi, greiningarteymi yngri barna sem sinnir börnum á aldrinum 6-12 ára, greiningarteymi eldri barna sem sinnir börnum á aldrinum 12-18 ára, ráðgjafar- og meðferðarteymi og fjölskylduteymi 0-5 ára.

Um er að ræða 100% starf og ráðið er í starfið frá 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á faglegri starfsemi greiningateyma og tekur þátt í þróun Geðheilsumiðstöðvarinnar
  • Ber ábyrgð á mannauðstengdum málum
  • Heldur utan um starfsemi teymisins og ber ábyrgð á heildarþjónustu við skjólstæðinga
  • Ber ábyrgð á þróun og uppbyggingu teyma í samráði við forstöðumann
  • Hefur umsjón með gæða-, öryggis- og umbótavinnu teyma
  • Heldur utan um heildarflæði mála og verkefna
  • Veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda
  • Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
  • Veitir ráðgjöf til fagfólks og tilvísenda
  • Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu, jákvæðum starfsanda og vellíðan starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmaður útgefið af Embætti landlæknis
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Víðtæk reynsla á sviði geðheilbrigðismála
  • A.m.k. 5 ára reynsla af greiningar- og/eða meðferðarstarfi
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Reynsla af gæða- og verkefnastjórnun kostur
  • Þekking og reynsla á sviði mannauðsmála kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Framsýni og lausnamiðuð hugsun
  • Góð færni í að vinna í þverfaglegu teymi
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta og gott vald á rituðu íslensku máli
  • Góð enskukunnátta
Fríðindi í starfi

Heilsustyrkur 

Samgöngustyrkur

Advertisement published23. March 2026
Application deadline9. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags