
Kjálkaskurðlæknar Álftamýri óska eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa.
Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri óska eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa.
Starfshlutfall er 75-100% eftir samkomulagi og æskilegt væri að geta hafið störf sem fyrst en ekki skilyrði.
Starfið er mjög fjölbreytt og felur í sér að aðstoða skurðlækni við aðgerðir, sótthreinsun áhalda og umönnun og samskipti við sjúklinga.
Hæfniskröfur:
-
Þjónustulund, jákvæðni, góð samskiptahæfni og metnaður í starfi
-
Hæfni til að sýna frumkvæði, vinna sjálfstætt ásamt því að vinna með öðrum
-
Geta og áhugi á að vinna undir álagi við spennandi verkefni þar sem enginn dagur er eins
Á stofunni starfa tveir kjálkaskurðlæknar, hjúkrunarfræðingar, svæfingalæknir, geislafræðingur og ritari.
Áhugasamir geta fengið frekari upplýsingar eða sent umsókn á [email protected]
Guðmundur Á. Björnsson og Olga Hrönn Jónsdóttir
Icelandic
English













