Hjúkrunardeildarstjóri á brotaendurhæfingardeild - Tímabundin staða
Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi á brotaendurhæfingardeild L1 á Landakoti. Staðan er tímabundin til eins árs vegna afleysinga. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing og aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
Brotaendurhæfingardeild L1 er staðsett á Landakoti í hjarta Reykjavíkur, í fallegu og friðsælu umhverfi. Þar dvelja sjúklingar sem þurfa styttri endurhæfingu eftir brot, með það að markmiði að endurheimta færni, hreyfigetu og sjálfstæði og stuðla að öruggri útskrift heim. Unnið er í þverfaglegu teymi þar sem lögð er áhersla á markvissa endurhæfingu. Lögð er áhersla á að efla gæðamenningu á deildinni, styðja vel við aðstandendur og skapa sterkt og styðjandi starfsumhverfi þar sem fagmennska og þróun starfsfólks eru í forgrunni.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur endurhæfingarþjónustu.
Education and requirements
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Hæfni til að leiða teymi
Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Góð íslenskukunnátta
Responsibilities
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækna og forstöðufólk endurhæfingarþjónustu
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan öldrunar- og endurhæfingarþjónustu
Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan öldrunar- og endurhæfingarþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala