Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Forstöðumaður orkumiðlunar

Við hjá Landsvirkjun leitum að drífandi og framsýnum leiðtoga til að taka við starfi forstöðumanns orkumiðlunar á sviði Sölu og þjónustu. Orkumiðlun ber ábyrgð á þátttöku fyrirtækisins á raforkumarkaði og mótun vöruframboðs. Forstöðumaður leiðir þróun vöruframboðs í heildsölu, tryggir virkni viðskiptavefjar og hefur áhrif á hvernig við mætum þörfum viðskiptavina. Þetta eru spennandi verkefni á tímum breytinga og framþróunar á raforkumörkuðum. Í starfinu felst tækifæri til að leiða öflugt teymi og þróa lausnir sem skipta máli fyrir viðskiptavini og samfélagið í heild.

Helstu verkefni:

  • Móta starfsemi orkumiðlunar til framtíðar
  • Leiða teymið, styðja við þróun þess og þekkingu
  • Greina stöðu og þróun heildsölumarkaðar
  • Selja raforku með þátttöku á skipulegum raforkumarkaði
  • Þróa viðskiptavef og ferla sem snúa að rekstri raforkusamninga

Menntun og reynsla:

  • Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af orkumarkaði og/eða upplýsingatækni er kostur
  • Leiðtogafærni, reynsla af stjórnun og uppbyggingu teyma er kostur
  • Jákvæðni, samskiptafærni, drifkraftur og lausnamiðuð nálgun

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og áhuga á starfinu.

Advertisement published31. March 2026
Application deadline21. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Business strategyPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags