Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Stjórnandi íþrótta og frístundamála

Brennur þú fyrir tómstundamálum barna og fullorðinna?

Hefur þú áhuga á rekstri og þróun íþróttamannvirkja?

Við erum að leita að öflugum leiðtoga til að fara fyrir íþrótta- og frístundamálum í Fjarðabyggð. Ert þú dugmikill einstaklingur með reynslu af íþrótta- og frístundamálum? Hefur þú brennandi áhuga á að efla fjölbreytni og fagmennsku í íþróttum og frístundamálum? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér!

Fjarðabyggð er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni fjölskyldna og barna. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og samvinnu starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast fjölskyldum og börnum með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.

Starf stjórnanda íþrótta- og frístundamála heyrir undir sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Starfsmaður vinnur sem hluti af þverfaglegu teymi stjórnenda fjölskyldusviðs þar sem áhersla er lögð á samvinnu þvert á málaflokka.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er yfirmaður málaflokksins og stýrir rekstri hans þ.m.t. starfi og rekstri íþróttamannvirkja Fjarðabyggðar, félagsmiðstöðva Fjarðarbyggðar, frístundaþjónustu Fjarðabyggðar, félagsheimilinu Egilsbúð og tómstundamálum eldri borgara.
  • Stuðlar að sem hagkvæmustum rekstri þeirrar starfsemi sem undir hann heyri og hefur eftirlit með því að starfsemi þeirra stofnana sem undir viðkomandi heyra uppfylli gæðakröfur samkvæmt samningum, lögum og reglugerðum sem til þeirra eru gerðar.
  • Hefur eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða um íþrótta- og æskulýðsmál sem gilda hverju sinni, sem og með starfsemi íþróttamannvirkja sveitarfélagsins.
  • Umsjón með rekstri vinnuskólans og námskeiðum sem haldin eru fyrir starfsmenn hans.
  • Yfirumsjón með skipulagi og samræmingu starfseminnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólapróf á sviði sem nýtist í starfinu.
  • Starfs- og stjórnunarreynsla á sérfræðisviðinu er æskileg.
  • Reynsla og þekking á rekstri, stjórnun og stefnumótun er æskileg.
  • Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.
  • Góð tölvuþekking
  • Þekking á undirbúningi og stjórnun funda.
  • Góð málakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
  • Hreint sakavottorð
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Advertisement published4. March 2026
Application deadline1. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags