Bílaleigan Berg - Sixt
Bílaleigan Berg - Sixt
Bílaleigan Berg - Sixt

Flotastjóri

Vertu í lykilhlutverki hjá SIXT á Íslandi

Framundan eru spennandi tímar hjá SIXT á Íslandi. Þann 1. apríl opnum við nýtt útibú innan veggja flugstöðvarinnar í Keflavík og samhliða því er framundan markviss uppbygging og fjölgun í bílaflota fyrirtækisins. Við leitum að öflugum flotastjóra sem vill taka virkan þátt í þessari vegferð og hafa raunveruleg áhrif á rekstur og árangur.

Hlutverk og ábyrgð
Sem flotastjóri berð þú heildarábyrgð á bílaflota SIXT á Íslandi
Þú tryggir að flotinn sé ávallt í toppstandi, rétt staðsettur og nýttur á sem hagkvæmastan hátt.

Helstu verkefni eru meðal annars:
• Heildaryfirsýn og stjórnun bílaflotans um allt land
• Tryggja jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar
• Umsjón með viðhaldi, viðgerðum og samskiptum við verkstæði
• Yfirumsjón með tjónamálum og samskiptum við tryggingafélög
• Kostnaðareftirlit og greining tækifæra til hagræðingar
• Umsjón með bílasölu í samstarfi við framkvæmdarstjóra
• Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi þróun flotans

Þetta er lykilstaða þar sem nákvæmni, skipulag og sterk rekstraryfirsýn skipta sköpum.

Við leitum að einstakling sem
• Hefur reynslu af rekstri, flotastjórnun eða sambærilegu ábyrgðarstarfi
• Hefur sterka greiningarhæfni og kostnaðarvitund
• Er skipulagður og lausnamiðaður
• Á auðvelt með samstarf og samskipti við ólíka aðila
• Getur tekið ákvarðanir og fylgt þeim eftir

Af hverju SIXT
• Þú tekur þátt í spennandi vaxtar- og umbreytingarferli
• Þú hefur bein áhrif á einn mikilvægasta þátt rekstrarins
• Þú starfar í kraftmiklu og metnaðarfullu teymi
• Þú færð tækifæri til að móta framtíð bílaflota fyrirtækisins

Ef þú vilt vera í lykilhlutverki á tímamótum hjá alþjóðlegu vörumerki í sterkri stöðu á Íslandi, þá viljum við heyra frá þér.

Sótt er um starfið í gegnum Alfreð.

Advertisement published3. March 2026
Application deadline13. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Blikavöllur 5, 235 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags