Leikskólinn Akrar
Leikskólinn Akrar
Leikskólinn Akrar

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir leikskólakennara

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf. Við leitum að drífandi viðbót í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og allskonar fólki eru miklar líkur á að þú fallir vel inn í hópinn okkar. Starfsandi á Ökrum er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.

Akrar eru fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegn um leik í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans eru virkni og vellíðan þar sem við viljum að öllum börnum og fullorðnum líði vel og upplifi gleði og sigra á hverjum degi.

Viltu vera með í okkar liði?

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsfólk með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi í starfi
  • Á Ökrum er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar.
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 0,25% stöðugildi vegna snemmtækra íhlutunar inn á hverri deild.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16.30 mánud-fimmtud og 7:30-16:00 á föstudögum.
  • Fimm skipulagsdagar á ári.
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.
Advertisement published16. December 2024
Application deadline10. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Línakur 2, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags