Þingeyjarsveit
Þingeyjarsveit

Leikskólakennari/starfsmaður á leikskóla

Krílabær er önnur tveggja leikskóladeilda Þingeyjarskóla sem er samrekinn leik- og grunnskóli á tveimur starfsstöðvum. Nemendur Krílabæjar eru 6 talsins. Áhersla er lögð á mikil og góð tengsl nemenda, starfsfólks og foreldra, tákn með tali og unnið er eftir stefnunni um jákvæðan aga. Leikskóladeildin býður uppá rólegt og gott vinnuumhverfi.

Við leitum að starfsfólki sem:

  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
  • Hefur brennandi áhuga á að starfa með börnum og ber virðingu fyrir þeim
  • Er lausnamiðað og vill taka þátt í teymisvinnu

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 12. ágúst.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júlí 2025 og skulu umsóknir berast á netfangið [email protected]

Frekari upplýsingar um störfin veitir Nanna Marteinsdóttir leikskólastjóri Þingeyjarskóla, í gegnum tölvupóst [email protected] og í síma 464-3590/898-0790.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk nemenda.
  • Taka þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við yfirmann.
  • Sinna verkefnum er varða uppeldi og menntun nemenda sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, uppeldismenntun eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Færni í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta
Advertisement published23. June 2025
Application deadline6. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Laugar, Reykjadal
Type of work
Professions
Job Tags