Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Leikskóla- og frístundaliði - Norðurberg

Leikskólinn Norðurberg óskar eftir að ráða leikskóla-og frístundaliða í fullt starf, tímabundið í eitt ár.

Leikskólinn Norðurberg er 6 deilda leikskóli í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Þar dvelja að meðaltali 101 börn og um 32 starfsmenn. Áherslur leikskólans eru: umhverfismennt og útikennsla (Grænfána leikskóli), jákvæð samskipti (Að næra hjartað/PMT), hollusta og hreyfing, vináttuleikskóli Barnaheilla og snemmtæk íhlutun í málþroska ungra barna. Á Norðurbergi er starfsfólk með mikinn metnað fyrir starfi sínu og starfsánægja og starfsandi er góður.Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa metnað og áhuga fyrir starfinu.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna á leikskóla undir leiðsögn og stjórn deildarstjóra
  • Tekur þátt í leikskóla- og frístundastarfi innan leikskólans og öðrum þeim störfum sem fram fara innan skóladagsins.
  • Tekur þátt og kemur að hugmyndavinnu og skipulagi á tómstunda- og frístundastarfi innan leikskólans.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af leikskólastarfi eða öðrum störfum með börnum æskileg.
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Borg Harðardóttir leikskólastjóri, annaborg@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5851 og Gunnhildur Grímsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, gunnhildur.gr@hafnarfjordur.is í síma 555-3484.

Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.

Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2024.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published6. December 2024
Application deadline19. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Norðurvangur 15, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags