Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Launafulltrúi

Borgarbyggð leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í 50% starf launafulltrúa á fjámála- og stjórnsýslusviði.

Viðkomandi þarf að búa yfir góðri þekkingu á launavinnslu og hæfni til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði launamála. Við leggjum ríka áherslu á sjálfstæð vinnubrögð, jákvætt hugarfar og góða samskiptafærni. Leitað er að einstaklingi sem er talnaglöggur, sýnir frumkvæði, getur unnið sjálfstætt og tekið virkan þátt í að auka skilvirkni launa- og mannauðsferla sem stuðlar að umbótum og framþróun.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launavinnsla og frágangur launa
  • Rýni og frágangur á gögnum tengdum launavinnslu
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og innleiðingu nýrra launa- og mannauðsferla 
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál
  • Ýmsar skýrslugerðir, greiningar, samantektir og úrvinnsla á sviði launa- og kjaramála
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sambærilegu starfi, launamálum og launavinnslu
  • Þekking og reynsla af H3 launa- og mannauðskerfi, Vinnustund tímaskráningarkerfi og 50 skills er kostur
  • Sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni
  • Talnagleggni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • 36 klst vinnuvika 
  • Heilsustyrkur til starfsmanna 
Advertisement published24. June 2026
Application deadline8. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags