Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Verkefnastjóri þjónustu- og rekstrar

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði auglýsir tímabundið til eins árs, stöðu verkefnastjóra þjónustu- og rekstrar, lausa til umsóknar. Verkefnastjóri þjónustu- og rekstrar gegnir mikilvægu hlutverki í daglegri þjónustu, afgreiðslu og upplýsingagjöf Höfða. Starfið felur í sér móttöku gesta, skipulagningu viðburða, samskipti og þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra hagaðila, ásamt umsjón með ýmsum upplýsingamiðlum heimilisins.

Verkefnastjóri þjónustu- og rekstrar hefur jafnframt yfirumsjón með rekstri ræstingu og þvottahúss og ber ábyrgð á ýmsum innkaupum rekstrarvara.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með almennri þjónustu við íbúa, skipulagningu viðburða og öðru tengt heimilishaldi.
  • Ábyrgð á afgreiðslu og ýmsum samskiptum við hagaðila.
  • Umsjón með innri og ytri upplýsingagjöf.
  • Yfirumsjón með rekstri ræstingu og þvottahúss.
  • Fjárhagsleg ábyrgð í samræmi við fjárhagsáætlun, aðstoð við gerð fjárhagsáætlunar og skýrslugerð þessu tengt.
  • Þátttaka í innleiðingu nýjunga og þróun verkferla til að bæta þjónustu og skipulag innan heimilisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Háskólamenntun er kostur.
  • Reynsla af mannaforráðum er kostur.
  • Reynsla af innkaupamálum eða rekstri er kostur.
  • Þekking eða reynsla af starfsemi hjúkrunarheimila eða heilbrigðisstofnana er kostur.
  • Mjög góð tölvukunnátta er skilyrði, s.s. Word, Excel, Teams og Outlook.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar.
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Advertisement published18. June 2026
Application deadline5. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Sólmundarhöfði 5, 300 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags