
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Borgarfjarðar
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir náms- og starfsráðgjafa fyrir skólaárið 2026-2027. Um er að ræða 50% starf námsráðgjafa með 50% kennlu. Hlutastarf kemur einnig til greina.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að stafa í grunnskóla og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans. Grunnskóli Borgarfjarðar starfar á þremur starfsstöðvum. Á Hvanneyri eru 27 nemendur í 1.-5. bekk, á Kleppjárnsreykjum eru 112 nemendur í 1.-10. bekk og á Varmalandi eru 27 nemendur í 1.-4. bekk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Náms- og starfsfræðsla í elstu bekkjum grunnskóla.
- Fræðsla í bekkjum um námstækni, skipulag og markmiðssetningu.
- Fyrirlögn og úrvinnsla áhugasviðskannana.
- Stuðningur og ráðgjöf um líðan og námsframvindu einstakra nemenda.
- Ráðgjöf um markmið, námstækni og námsval til einstakra nemenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi á Íslandi.
- Samskipta- og skipulagshæfni.
- Stundvísi, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
- Góð færni í íslensku máli, jafnt ræðu sem riti.
Advertisement published22. June 2026
Application deadline6. July 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (7)

Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi
Borgarbyggð

Leiðbeinandi í Öldunni - virkni og hæfing fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Varmalandi
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Kleppjárnsreykjum
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund Borgarnesi
Borgarbyggð

Leikskólakennari á Hnoðraból
Borgarbyggð
Similar jobs (1)
