

Þjónustufulltrúi
Stúdentagarðar Félagsstofnunar stúdenta leita að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa. Þjónustufulltrúi stúdentagarða sinnir almennri þjónustu og upplýsingagjöf til þeirra sem leita til Stúdentagarða FS og vinnur náið með þjónustu- og samskiptastjóra við úrlausn mála. Þjónustufulltrúi mætir stúdentum með hlýlegu viðmóti og veitir framúrskarandi þjónustu, jafnt á íslensku sem og ensku.
Við leitum að einstaklingi sem sýnir frumkvæði, hefur góða skipulagshæfni og ríka þjónustulund. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september.
- Samskipti og þjónusta við íbúa Stúdentagarða
- Upplýsingagjöf í gegnum síma, tölvupóst og á skrifstofu
- Uppfæra ferla og verklag í samvinnu við þjónustustjóra
- Úthlutun húsnæðis
- Leigusamningagerð
- Yfirferð umsókna
- Framlenging leigusamninga
- Möguleg seta í úrskurðarnefnd Stúdentagarða og tengiliður íbúa við nefndina
- Önnur tilfallandi verkefni
- Góð samskiptahæfni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Góð samskiptahæfni
- Rík þjónustulund
- Skipulagshæfni
- Frumkvæði
- Almenn tölvukunnátta, þ.m.t. á Microsoft Office
- Góð tök á íslensku og ensku eru skilyrði
- Þekking á háskólasamfélaginu er kostur
Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda. Þar má meðal annars nefna íþróttastyrk og afslátt í Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og í Hámu.
FS er með öflugt starfsmannafélag sem sér meðal annars um að skipuleggja árshátíðarferðir erlendis annað hvert ár.
English
Icelandic










