
Snyrtivöruráðgjafi – L'Occitane & SKINCARELAB Smáralind
Langar þig að vinna með nokkrum af vinsælustu snyrti-, húð- og hárvörumerkjum heims?
Hjá L'Occitane & SKINCARELAB verslununum í Smáralind færð þú tækifæri til að vinna með vörumerkjum á borð við L'Occitane en Provence, Erborian, Pixi, K18, Novexpert, Xlash og PUPA Milano ásamt því að vera hluti af samheldnu teymi sem hefur brennandi áhuga á fegurð, vellíðan og framúrskarandi þjónustu.
Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í að skapa einstaka upplifun fyrir viðskiptavini okkar. Ef þú hefur áhuga á snyrtivörum, húðumhirðu og hárumhirðu, býrð yfir góðri samskiptahæfni og hefur gaman af teymisvinnu gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Starfshlutfall er 85- 90% og er vinnutími á virkum dögum breytilegur á tímabilinu frá kl. 10:30–19:00 og annan hvern laugardag. Um framtíðarstarf er að ræða.
Í versluninni starfar samhentur hópur fólks sem deilir ástríðu fyrir náttúrulegri fegurð, nútímalegri húðvörurútínu og frábærri þjónustu. Við leggjum áherslu á hlýlegt viðmót, þekkingu á vörum og sterka tengingu við viðskiptavini.
Við hvetjum öll áhugasöm – óháð kyni – til að sækja um og verða hluti af nýju og spennandi verkefni með alþjóðlegum og vaxandi vörumerkjum.
- Að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina
- Að hjálpa viðskiptavinum að finna vörur sem henta þeirra þörfum
- Að vinna að sölu- og þjónustumarkmiðum verslunarinnar
- Afgreiðsla, áfyllingar og vöruframsetning
- Að halda versluninni snyrtilegri og aðlaðandi
- Þátttaka í kynningum og samfélagsmiðlaverkefnum
- Að vera góður liðsfélagi og taka þátt í jákvæðu starfsumhverfi
- Hefur gaman af samskiptum við fólk og veita góða þjónustu
- Hefur áhuga á snyrtivörum, húðumhirðu og nýjustu straumum í fegurðarheiminum
- Er jákvæður, ábyrgur og stundvís
- Getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi
- Hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri
- Reynsla af verslunar-, sölu- eða þjónustustörfum er kostur
- Menntun í snyrtifræði eða förðun er kostur
- Áhugi á samfélagsmiðlum er kostur
- Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri og tala góða íslensku
- Afsláttur af vörum
Icelandic
English










