Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Kópavogslaug - Hlutastarf (52%)

Laugarvörður - Kópavogsluag - Hlutastarf

Laust er til umsóknar 52% starf í móttöku sundlaugarinnar og við laugarvörslu, þrif og baðvörslu í búningsklefum kvenna. Unnið er á vöktum. Á hverjum fjórum vikum eru tvær kvöldvaktir (báðar á föstudegi) klukkan 14:05 - 22:30 og fjórar morgunvaktir (þrjár á mánudegi og ein á þriðjudegi) klukkan 06:15 – 14:15. Þá er ein helgarvakt (laugardagur og sunnudagur) klukkan 07:45 – 18:30 (07:45 - 20:30 eftir 1. maí), á hverjum fjórum vikum .

Kópavogslaug er staðsett í vesturbæ Kópavogs, stutt frá Hamraborginni og er einn stærsti sundstaður landsins. Þar eru sundlaugar úti og inni, ásamt heitum pottum, köldum potti, gufubaði og rennibrautum. Hjá lauginni starfa á fjórða tug manna við þjónustustörf og öryggisgæslu.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í byrjun mars.
  • Starfshlutfall er 52%.
  • Um framtíðarstarf er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Allgóð sundkunnátta áskilin.
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og vera reglusamir, samviskusamir, vinnusamir, þjónustulundaðir og góðir í samskiptum.
  • Umsækjendur þurfa að geta unnið í búningsklefum kvenna.
  • Starfið hentar ekki síður þeim sem eru komnir á og yfir miðjan aldur en þeim sem yngri eru.
  • Starfið krefst allgóðrar íslenskukunnáttu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipta má störfum starfsmanna sundlaugarinnar í þrjú svið, ÖRYGGI, ÞRIF og ÞJÓNUSTU.
Á vinnustaðnum eru þrjú megin störf sem starfsfólk þarf að leysa af hendi.
Laugarvarsla sem felst í öryggiseftirliti og þrifum við laugar bæði úti og inni.
Baðvarsla sem einkum er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum.
Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit.
Starfsmenn fá námskeið í fyrstu hjálp, björgun og fleiru.

Frekari upplýsingar

Mikilvægt er að upplýsingar um meðmælendur fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til 18. mars.

Launakjör samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Starfsmannafélags Kópavogs.

Nánari upplýsingar veitir Jakob Þorsteinsson í netfanginu [email protected].

Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar - Líkamsræktaraðstaða

Advertisement published5. March 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Borgarholtsbraut 17, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.SwimmingPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags