Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Auglýsum eftir kennurum á unglingastigið

Auglýst er eftir kennurum í 80%-100% starfshlutfall í kennslu og umsjón á unglingastigi. Fyrst og fremst erum við að leita að stærðfræðikennara, íslenskukennara, enskukennara og náttúrufræðikennara fyrir skólaárið 2025 - 2026.

Við skólann eru tvær starfsstöðvar þar sem nemendur yngra stigs eru á Stokkseyri og nemendur eldra stigs á Eyrarbakka. Við skólann eru 144 nemendur, 79 á yngra stigi og 65 á eldra stigi. Sérstaða skólans felst í einstaklingsmiðaðri kennslu og skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu. Mikil áhersla er lögð á góð samskipti og góða samvinnu við nærumhverfið. BES er í þróunarvinnu sem miðar að því að verða teymiskennsluskóli þar sem kennarar vinna í teymum með samkennslu tveggja til þriggja árganga. BES er Erasmus+ skóli, vinnur skv. heilsueflandi gildum og vinnur markvisst gegn einelti. Þá er BES virkur þátttakandi í Lærdómssamfélagi Árborgar og í öflugu samstarfi við aðra grunnskóla í Árborg.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samstarf og ábyrgð í teymi.
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
  • Fylgist með samskiptum nemenda sinna innbyrðis og grípur strax inn ef minnsti grunur leikur á einelti og fylgir þá vinnuferli áætlunar gegn einelti.
  • Hefur samband við forsjáraðila eftir þörfum.
  • Situr kennara- og teymisfundi og aðra þá fundi sem skólastjórnendur fela honum.
  • Tekur þátt í vinnu við skólanámskrá og ýmis konar áætlanagerð innan skólans.
  • Færir námsmat, umsagnir og ástundun inn í Mentor.
  • Vinnur eftir gildum, stefnu og áherslum skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara.
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla er kostur.
  • Reynsla af teymiskennslu í grunnskóla er kostur.
  • Áhugi og metnaður fyrir að starfa með börnum og ungmennum.
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum.
  • Framtakssemi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Metnaður í starfi.
Advertisement published17. March 2025
Application deadline23. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Háeyrarvellir 56, 820 Eyrarbakki
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags