

Íþrótta- og tómstundafulltrúi
Grundafjarðarbær óskar eftir að ráða kraftmikinn og lausnamiðaðan einstakling með forystuhæfileika í starf íþrótta- og tómstundafulltrúa. Leitað er að aðila sem er óhræddur við að ganga í fjölbreytt og krefjandi verkefni. Þá er handlagni og verkvit kostur.
Starfið felst í þróun, skipulagningu, samræmingu og stjórnun íþrótta- og tómstundamála, forvarna og lýðheilsuverkefna á vegum bæjarins. Fag- og rekstrarleg ábyrgð á starfsemi íþróttamannvirkja og tjaldsvæðis, félagsmiðstöðvar unglinga og skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Samstarf við fagnefndir bæjarins og félagasamtök, umsjón eða aðkoma að viðburðum.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskiptafærni, frumkvæði og skilning á rekstri mannvirkja, auk hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og að leiða teymi.
- Umsjón með rekstri og starfsemi íþrótta- og tómstundastarfs, þ.m.t. starfsmannamál og dagleg stjórnun.
- Umsjón með rekstri íþróttamannvirkja.
- Ráðgjöf og þátttaka í stefnumótun og eftirfylgni stefnumótunar.
- Samningagerð, eftirfylgni með fjárhagsáætlunum og framvindu íþrótta- og tómstundamála.
- Ráðgjöf og stuðningur við fagnefndir bæjarins og bæjarstjórn.
- Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila á svæðinu sem og stofnanir og aðila utan þess.
- Stuðla að öflugu íþrótta- og tómstundastarfi barna og ungmenna og virk upplýsingagjöf um starfsemi málaflokksins.
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur, s.s. á sviði kennslu, íþrótta eða tómstunda.
- Farsæl reynsla af íþrótta- og tómstundastarfi, rekstri og stjórnun.
- Rík leiðtoga- og samskiptahæfni.
- Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun.
- Góðir skipulagshæfileikar, áreiðanleiki og aðlögunarhæfni.
- Góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Góð tölvukunnátta.
- Forsenda ráðningar er hreint sakavottorð skv. viðeigandi lögum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

