

Útibússtjóri Securitas á Reykjanesi
Við leitum að leiðtoga sem leiðir kraftmikinn hóp í fjölbreyttu og spennandi umhverfi.
Innan útibúsins starfa um 40 einstaklingar við sölu, öryggisgæslu og tækniþjónustu. Hópurinn vinnur þétt saman að því að bjóða upp á fjölbreytta og mikilvæga öryggisþjónustu, ásamt tæknilausnum til fyrirtækja og stofnana á svæðinu.
Starfssvið
Útibússtjóri kemur til með að leiða verkefni útibúsins á svæðinu, styður við teymi sérfræðinga ásamt því að bera ábyrgð á daglegri stýringu og rekstri útibúsins. Viðkomandi ber ábyrgð á áætlanagerð, innleiðingu og eftirfylgni verkefna ásamt því að viðhalda og efla samskipti við innri og ytri viðskiptavina félagsins. Útibússtjóri er hluti af stjórnendateymi Securitas. Búseta og þekking á svæðinu er mikill kostur.
Þekking og reynsla
- Reynsla af rekstri og stjórnun ásamt leiðtogahæfileikum
- Lausnamiðuð hugsun og nálgun verkefna með umbætur að leiðarljósi
- Rík samskipta- og félagsfærni og mikill áhugi á að veita framúrskarandi þjónustu og hæfni í stýringu viðskiptatengsla
- Frumkvæði, metnaður og árangursdrifni
- Menntun sem nýtist í starfi eða önnur víðtæk reynsla
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Tekið er við umsóknum til og með 30.mars 2025. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Inga Guðlaugsdóttir framkvæmdastjóri, mannauður og menning, [email protected] / 580-7000.









