Sýn
Sýn
Sýn

Hugbúnaðarsérfræðingur

Við leitum að reyndum og lausnamiðuðum hugbúnaðarsérfræðingi til að starfa við þróun og rekstur á hugbúnaðarlausnum Sýnar. Verkefnin eru fjölbreytt og unnin í náinni samvinnu við þróunarteymi, viðskiptadeildir og sérfræðinga í einingum Sýnar til að tryggja að hugbúnaðarlausnir standist bæði tæknilegar og viðskiptalegar kröfur. Viðkomandi mun tilheyra Upplýsingatæknisviði en á sviðinu starfa metnaðarfull teymi sem sérhæfa sig í hugbúnaðartengdum verkefnum Sýnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framþróun og viðhald stafrænna lausna fyrir viðskiptavini, sölu eða þjónustu eða aðra hagsmunaaðila Sýnar.
  • Greining, hönnun og útfærsla á nýjum eiginleigum í samræmi við þarfir.
  • Samþætting kerfa og þróun vefþjónusta.
  • Leiðréttingar á villum og bestun á hugbúnaðarkerfum.
  • Sjálvirknivæðing ferla, afhendinga, prófana og reksturs.
  • Þáttaka í skjalagerð og skjölun kóða.
  • Þáttaka í kóðarýni.
  • Viðhalda þekkingu á tækninýjungum innan hugbúnaðarþróunar, meta hvernig þær geta stutt við rekstur Sýnar og tryggt samkeppnishæfni.
  • Þáttaka í mótun á tæknilegum arkítektúr og kerfislandslagi fyrir upplýsingatækni Sýnar með það að markmiði að tryggja skalanleika, skilvirkni, öryggi og áreiðanleika.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða önnur sambærileg menntun.
  • Góð skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Lausnamiðað hugafar og sveigjanleiki.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og hluti af teymi.
  • Góð færni í ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.

Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 18.maí nk. Nánari upplýsingar veitir Kristinn Vignisson, Deildarstjóri Hugbúnaðarþróunar, [email protected]

Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningavefinn okkar.

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Hver erum við?

Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Já.is, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Advertisement published7. May 2025
Application deadline18. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags