Veritas
Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu. Veritas er móðurfélag fyrirtækjanna Artasan ehf., Distica hf., MEDOR ehf., Stoð hf. og Vistor hf. Fyrirtækið er kjölfesta samstæðunnar og veitir þjónustu til dótturfyrirtækjanna svo þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni.
Hugbúnaðarsérfræðingur
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum forritara, sem hefur áhuga á að taka þátt í innleiðingu á Microsoft Business Central úr Dynamics NAV til að slást í upplýsingatæknihóp Veritas. Um er að ræða spennandi starf í samhentu teymi fagfólks sem sér um upplýsingatæknimál Veritas samstæðunnar.
Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni og faglega kunnáttu til að vinna að þeim verkefnum sem liggja fyrir hverju sinni. Viðkomandi þarf einnig að búa yfir frumkvæði og getu til að hrinda verkefnum í framkvæmd, vera árangursdrifinn og hafa gott auga fyrir nýjum tækifærum og umbótum.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Greining á þörfum, tæknilegum kröfum og hönnun hugbúnaðarlausna sem styðja við vinnuferla Veritas samstæðunnar.
-
Þátttaka í þróun upplýsingatækni innan Veritas samstæðunnar.
-
Forritun lausna.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. tölvunar- eða hugbúnaðarverkfræði.
-
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
-
Lausnamiðuð hugsun, þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
-
Reynsla og þekking á Dynamics NAV og Microsoft Business Central er kostur.
-
Þekking á Microsoft umhverfi: .NET og Power Platform er kostur.
-
Áhugi á að vinna með m.a. samþættingu kerfa og vefþjónustur.
-
Góð tækniþekking og geta til að setja sig inn í ný kerfi og umhverfi.
Advertisement published10. January 2025
Application deadline19. January 2025
Language skills
Icelandic
ExpertRequired
Location
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Kerfisstjóri á upplýsingatæknideild
Vegagerðin
Upplýsingatæknistjóri
Míla hf
Fullstack Software Engineer, Reykjavik
Asana
Engineering Manager, Reykjavik
Asana
Tæknimaður með reynslu
Örugg afritun ehf.
Sérfræðingur í Kerfisrekstri
Landsbankinn
DevOps Engineer
atNorth
Reyndur full-stack vef-forritari
Overcast ehf.
Leiðtogi upplýsingatækni
Mosfellsbær
Framendaforritari
Reon
Forritari / gagnasérfræðingur
Strætó bs.
Sérfræðingur í stafrænum lausnum
Vegagerðin