

Hópstjóri farangurskerfa og umsjónarmanna
Við leitum að öflugum og drífandi hópstjóra til að leiða teymi sem sér um viðhald og bilanir ásamt eftirliti á farangurskerfi og öðrum eignum á Keflavíkurflugvelli. Teymið sinnir einnig fyrsta viðbragði vegna bilana og rekstrarfrávika. Starfið felur í sér verkstjórn, skipulagningu auk þess að tryggja öryggi, gæði og góða þjónustu í öllum verkefnum. Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling með leiðtogafærni og skipulagshæfileika sem vill taka þátt í að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnumenningu á Keflavíkurflugvelli.
Helstu verkefni:
- Dagleg umsjón og verkstjórn starfsmanna
- Skipulagning viðhaldsvinnu í samræmi við viðhaldsáætlanir
- Forgangsröðun verka í samráði við eignastjóra og/eða planara
- Mat á rekstraráhrifum viðhalds eða bilana og upplýsingagjöf til hagsmunaaðila
- Eftirfylgni og samþykki með tímaskráningum starfsmanna
- Skipulagning innkaupa vegna viðhaldsverka
- Þátttaka í verkefnum stjórnendateymis Mannvirkja og Innviða
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf í iðngrein eða sambærilegt sem nýtist í starfi
- Verkstjóranámskeið er kostur
- Reynsla af verkstjórn teyma og leiðtogafærni er kostur
- Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og drifkraftur
- Góð færni í ensku, bæði í riti og tali
- Bílpróf
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 8.janúar 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórhildur Gunnarsdóttir deildarstjóri, [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
English
Icelandic










