Slippurinn Akureyri ehf
Slippurinn Akureyri ehf
Slippurinn Akureyri ehf

Hönnuðir

Slippurinn Akureyri framleiðir eigin vörulínu til matvælavinnslu undir nafninu DNG. Fyrirtækið er leiðandi á sínu sviði. Verkefnin snúa flest að eigin framleiðsluvörum Slippsins en einnig að sérlausnum fyrir viðskiptavini.

Slippurinn hefur sterka markaðshlutdeild þegar kemur að hönnun og framleiðslu á vinnslubúnaði fyrir fiskiskip og fiskvinnslur.

Hönnunardeild heyrir undir framleiðslusvið fyrirtækisins og er fyrirtækið með starfsstöðvar á Akureyri og höfuðborgarsvæðinu. Vegna mikilla umsvifa og fjölgunar verkefna, leitum við nú að snjöllum hönnuðum til að bætast í frábæran hóp starfsmanna Slippsins, á báðar starfsstöðvar félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun vinnslu- og vélbúnaðar fyrir matvælavinnslur 

  • Frágangur teikninga til notkunar í framleiðslu.  

  • Þátttaka í vöruþróunarstarfi félagsins 

  • Frágangur söluteikninga og kynningarefnis í samráði við markaðsstjóra 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. tæknifræði, verkfræði, vélaverkfræði

  • Reynsla í notkun þrívíddar hönnunarforrita t.d. Inventor eða SolidWorks 

  • Vinna vel í teymi og geta tekið virkan þátt í alþjóðlegu vinnuumhverfi 

  • Hafa gott vald á íslensku og ensku, norðurlandamál er kostur 

  • Reynsla af matvælaiðnaði er kostur 

Advertisement published4. September 2024
Application deadline27. September 2024
Language skills
IcelandicIcelandicIntermediate
EnglishEnglishIntermediate
Type of work
Professions
Job Tags