Flóahreppur
Flóahreppur
Flóahreppur

Hlutastarf á fasteignasviði Flóahrepps

Leitað er eftir metnaðarfullu, sjálfstæðu og jákvæðu starfsfólki til að sinna ýmsum fjölbreyttum verkefnum í fasteignum hjá sveitarfélaginu Flóahreppi.

Starfshlutfall er um 40-60%

Vinnutími almennt virka daga eftir kl. 16:00 og vaktir aðra hverja helgi að jafnaði yfir árið. Vinnutími stýrist að mestu af útleigu og starfsemi í fasteignunum.

Unnið er í náinni samvinnu við aðra starfsmenn á fasteignasviði og undir verkstjórn umsjónarmanns fasteigna í Flóahreppi.

Mikilvægt er að umsækjandi búi á svæðinu þar sem starfið krefst þess að vera nærri vinnustað.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknir um starfið ásamt starfsferilskrá og meðmælum berist í gegnum alfreð.is eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Yfirferð umsókna hefst 15. febrúar 2025 en tekið verður við umsóknum til 28. febrúar ef þörf er talin á lengri umsóknarfresti.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Hulda Kristjánsdóttir sveitarstjóri (480 4370 / [email protected])

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Húsvarsla í fasteignum
  • Samskipti við reglulega notendur svo sem ungmennafélag, kóra og félagasamtök.
  • Umsjón með lóðum við fasteignir
  • Undirbúningur vegna viðburða
  • Þrif og frágangur
  • Tilfallandi verkefni og viðhald
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gild ökuréttindi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi
  • Áreiðanleiki
  • Sveigjanleiki
  • Sjálfstæði 
  • Snyrtimennska
  • Almenn tölvukunnátta
  • Krafa um íslenskukunnáttu
  • Enskukunnátta
Fríðindi í starfi

Sveigjanleiki í vinnutíma. Hentar mjög vel með námi eða sem aukavinna. 

Advertisement published28. January 2025
Application deadline28. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Heiðargerði 186572, 801 Selfoss
Leikskólinn Krakkaborg
Þingborg 166286, 801 Selfoss
Flóaskóli
Félagslundur 165473, 801 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Professions
Job Tags