

Verkstjórar í vinnuskóla
Leitað er eftir öflugum einstaklingum sem eiga auðvelt með samskipti og hafa gaman af því að starfa með unglingum og ungmennum.
Verkstjórar undirbúa, skipuleggja og stýra sumarvinnu unglinga í sveitarfélaginu Flóahreppi og vinna með umsjónarmanni fasteigna og öðrum starfsmönnum á fasteignasviði sveitarfélagsins.
Vinnuskólinn sinnir umhirðu, ræktun, viðhaldi og fleiri verkefnum, oft í tengslum við félagsheimili, skólalóð, íþrótta- og útivistarsvæði. Verkefnin eru nokkuð fjölbreytt svo sem að gróðursetja, slá og raka, hreinsa beð, grisja skóg, mála, plokka, sópa, þrífa, smíða og leggja hellur, grasþökur eða göngustíga.
Vinnuskólinn starfar í 7 vikur í júní – júlí en verkstjórar geta unnið yfir lengra tímabili skv. samkomulagi.
Einnig er möguleiki á afleysingum um kvöld og helgar í félagsheimilum ef áhugi er á meiri vinnu.
- úthluta verkefnum og leiðbeina um vinnubrögð
- skipulagning uppákoma í tengslum við vinnuna
- gæta að og ganga frá áhöldum og vélum sem notuð eru
- samskipti við forráðamenn
- utanumhald og skil á vinnuskýrslum
- samskipti við aðra starfsmenn á fasteignasviði
- Verkstjóri í vinnuskóla þarf að vera fær í samskiptum ásamt því að geta verið unglingum góð fyrirmynd.
- Vinnusemi, stundvísi og sjálfstæði í starfi eru jafnframt mikilvægir kostir.
- Gerð er krafa um að verkstjóri hafi náð 18 ára aldri.
- Gilt ökuskírteini.
- Ekki er gerð formleg krafa um menntun til að gegna starfi verkstjóra í vinnuskóla en reynsla af starfi með unglingum er æskileg.
- Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
- Sveigjanlegur vinnutími þann tíma sem vinnuskóli unglinga er ekki starfandi.
- Möguleiki á aukavinnu um helgar.
- Sveitarfélagið getur boðið starfsmanni upp á námskeið í skyndihjálp og vinnuvernd.












