
Grænni byggð leitar að verkefnastjóra
Grænni byggð er samstarfsvettvangur stofnaður árið 2010 til að efla umhverfisvitund og fræða, tengja og hvetja hagsmunaaðila í byggingargeiranum til þess að innleiða sjálfbærari vinnubrögð.
Við erum að leita að starfskrafti í fullt starf (100%) til að vinna sem verkefnastjóri í ýmsum verkefnum tengdum sjálfbærni í byggingariðnaði. Ráðið verður í starfið í 12 mánuði með möguleika á framlengingu.
Umsóknum með ferilskrá og kynningarbréfi skal skila í gegnum Alfreð eða á [email protected] fyrir 14. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Katarzyna Jagodzińska ([email protected] eða 844 5519)
→ Skipulagning verkefna og framkvæmd t.d. söfnun gagna og utanumhald, rannsóknir og útfærsla niðurstaðna í formi leiðbeininga og fræðsluefnis.
→ Samstarf við hagsmunaaðila innanlands og erlendis.
→ Gerð fjárhagsáætlanna og umsjón með gögnum.
→ Kynning á verkefnum, miðlun og skipulagning viðburða.
✔ Meistarapróf í grein sem tengist starfsemi Grænni byggðar (umhverfismál í byggingariðnaði, til dæmis, arkitektúr, hringrásarhagkerfi, umhverfisskipulag, vistvænt byggt umhverfi o.fl.).
✔ Reynsla af verkefnastjórnun.
✔ Sveigjanleiki og góð samskiptahæfni.
✔ Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni.
✔ Góð íslensku- og enskukunnátta
Icelandic
English










